|
Dagatal
| febrúar - 2012 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | | | 1 | 2 | 3 | 4 | | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | | 26 | 27 | 28 | 29 | | Fyrri | Næsti |
|
16.06.2008 12:35:35 / jonatan
Ég skrapp í gönguferð með Göngusystrum á Triglav, hæsta fjall Slóveníu sem er 2.864 m hátt, í Júlíönsku Ölpunum. Við byrjuðum á að skoða dropasteinshellana og kastalann við Postonja. Við gistum við Bled vatnið, yndislegur staður, fegurð og friðsæld. Skoðuðum þar kastala og sigldum á árabáti út í einu eyju Slóveníu, þar er kirkja og fengum við að hringja kirkjubjöllunum. Daginn eftir hófst svo sjálf gönguferðin hjá 16 Göngusystrum. Leiðsögumennirnir, þrír fjallagarpar sem allir eru búinr að klífa hæstu fjöll heims og hljóta alls konar viðurkennigar, komu til okkar á hótelið og ókum við í rútu inn í óbyggðir, eða þangað sem vegurinn endaði. Við tók löng gönguferð sem byrjaði í um 1300m hæð, erfið á köflum en skemmtileg. Veðrið var gott, léttskýjað og hlýtt. Stígarnir voru oftast greiðfarnir og þar sem við þurftum að fara yfir erfiða kafla voru vírar og naglar til að halda sér í og jafnvel ganga á. Á einum stað hafði fallið stór skriða á slóðann sem var ansi erfið yfirferðar, stór björg sem við þurftum að klifra yfir og þverhnípt fjallið á aðra hönd. Við gengum í 10 tíma með fáum og stuttum pásum á leiðinni og voru allar þreyttar þegar við komum á áfangastað. Einnig hafði þunna loftið mikil áhrif á mig, það var mjög skrýtin tilfinnig að anda og anda en fá ekki nægt súrefni. Við gistum í skála um 300 metrum frá hæsta tindi Triglav og í býtið daginn eftir var gengið á tindinn, ég var eftir í skálanum ásamt nokkrum öðrum á meðan hinar fóru alla leið. Allt gekk vel og var hópurinn sameinaður aftur um hádegið. Eftir hádegismat var haldið niður aftur. Vegna þess að ekki var búið að opna aðra skála á leiðinni og vegna slæmrar veðurspár þrumuveðurs og eldinga var ákveðið að fara styttstu leið niður, eða í gagnstæða átt við það sem við áttum að fara. Ferðin niður gekk vel og var lækkunin um 1550m (1860m hjá þeim sem fóru á toppinn) við heyrðum þrumugnýinn allan daginn í fjarska og þegar við vorum komnar niður í dalinn var farið að rigna. Við komum í náttstað um kvöldmat við Bohinj vatnið, staður sem maður gæti hugsað sér að fara aftur til. Næstu daga á eftir vorum við í vellystingum gistum á heilsuhóteli í suður Slóveníu, fórum í skoðunarferðir um svæðið og var boðið í grillveislu á lítilli vínekru. Vorum síðasta daginn í höfuðborginni Ljubliana í ausandi rigningu. Ég setti eina mynd af mér og Triglav í myndamöppuna, set kanski fleiri myndir seinna. Binna
»
01.05.2008 12:48:38 / jonatan
1. maí hefur spilað stórt hlutverk í lífi flestra. Þann dag var Knattspyrnufélagið Týr stofnað og svo er það líka baráttudagur verkalýðsins. En það er líklegra að við sem þekktum Jónatan Helga munum þennan dag sem daginn sem Jónatan dó. Í dag eru liðin 2 ár síðan við kvöddum Jónatan á sjúkrahúsinu á Kanaríeyjum. Við viljum nota tækifærið og þakka fyrir þann tíma sem við áttum með Jónatani og fyrir allt það sem Jónatan kenndi okkur um lífið og tilveruna. Kveðja til ykkar allra Binna, Rabbi og Snorri, Palli og fjölskylda
»
25.12.2007 18:01:50 / jonatan
Sendum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Vonandi mun nýja árið færa okkur öllum gleði og hamingju. Jólakveðja Binna, Rabbi og Snorri.
»
30.08.2007 13:47:58 / jonatan
Jónatan Helgi hefði orðið 20 ára í dag. Honum hefði þótt gaman að halda stóra veislu, með græurnar í botni…….og bjóða öllum vinunum í partý. Snorri Benedikt á líka afmæli í dag hann er 12 ára, hann ætlar að halda upp á afmælið sitt þegar sólpallurinn verður tilbúinn. Til hamingju með afmælin elsku synir, mamma og pabbi. ps. Eyrún, takk fyrir kveðjuna, gangi þér vel með litla Bumbustrákinn þinn.
»
28.08.2007 18:03:41 / jonatan
Tímatal okkar Vestmannaeyinga miðast við fyrir gos og eftir gos og fyrir og eftir þjóðhátíð. Núna er eftir þjóðhátíð. Við skelltum okkur til Eyja á þjóðhátíð, öll fjölskyldan, Palli, Helena, Einar Rafn og Snorri fóru á miðvikudeginum með Herjólfi, þau gistu hjá Steinunni ásamt fleirum, en Mæja fór með næturferð Herjólfs og gisti hún hjá Jónu Heiðu. Við Rabbi fórum síðan með Bakkaflugi á föstudagskvöldið eftir vinnu, við fengum að sofa hjá Hjalla og Möggu. Steinunn hafði á orði að þetta væri eins og hjá ekta ítalskri fjölskyldu, stórfjölskyldan safnaðist saman í mat á hverjum degi, oftast um 20 manns. En þjóðhátíðin fór vel fram og allir fóru ánægðir heim.
Palli og Helena eru búin að skipta um íbúð, þau eru að flutt á Álftanesið. Það verður gott að hafa þau í næsta nágrenni. Við erum aftur á móti að smíða sólpall fyrir aftan húsið og klárast hann vonandi á næstu dögum. Svo er kominn þar heitur pottur með öllum helstu þægindum. Þar verður yndislegt að láta þreytuna líða úr sér eftir vinnudaginn.
Einar Rafn varð eins árs þann 16. ágúst. Hann dafnar vel og er duglegur strákur, algjör “sjarmör”. Hann hafði rosalega gaman af þjóðhátíðinni, ljósunum, brennunni og flugeldunum. Ég fór yfirleitt með hann heim að sofa um kl; 01:30 - 02:00 og söng hann og trallaði í bekkjabílnum á leiðinni. Hann hefur svo gaman af því að vera í fjöri og innan um fólk að hann rembist við að sofna ekki. Þegar það loks gerist þá sefur hann mjög hratt til að missa nú ekki af neinu.
Endilega þið sem eruð að skoða síðuna, látið vita af ykkur, það er svo gaman að fá kveðju frá ykkur. Annars biðja allir að heilsa og ég ætla að reyna að setja nokkrar myndir fljótlega. Kv. Binna
»
11.04.2007 22:17:02 / jonatan
Það er ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða............en
samt er svo langt síðan við sáum Jónatan Helga síðast. Nú er komið
heilt ár frá því hann slasaðist á Kanaríeyjum, manni finnst sem það
hafi verið í gær.
Hjartað herpist saman og það kemur hnútur í magann þegar maður
hugsar til baka. En við verðum að trúa því að allt sem við upplifum
hafi einhvern tilgang og að raunir okkar styrki okkur. Eitt er
víst, við erum öll betri manneskjur eftir að hafa verið samferða og
þekkt Jónatan Helga.
Jónatan þekkti marga og það eru ótrúlega margir sem tala um hann
sem VIN sinn. Okkur sem þekktum hann finnst það eðlilegt því hann
var hvers manns hugljúfi, gaf sig á tal við alla og gerði ekki
mannamun á fólki. Hann var alltaf boðinn og búinn ef einhver þurfti
á hjálp að halda.
Af okkur er annars allt gott að frétta, við reynum að láta
lífið ganga sinn vana gang. Einar Rafn, sonur Palla og Helenu, er
að verða 8 mánaða og er mjög flottur strákur. Hann er algjör
sólargeisli og hefur hjálpað okkur öllum mikið í gegn um efiða
tíma.
Kveðjur til ykkar allra
Binna og Rabbi.
»
26.12.2006 14:50:35 / jonatan
Kæru vinir.
Um leið og við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
langar okkur til að þakka allan þann ómetanlega stuðning sem þið
sýnduð okkur við fráfall Jónatans Helga.
Kær kveðja
Binna, Rabbi og Snorri Benedikt.
»
01.11.2006 10:32:17 / jonatan
Einar Rafn var skírður á sunnudaginn, af séra Jónu Hrönn,
Garðakirkja var full af vinum og ættingjum, mjög hátíðleg og falleg
stund. Eftir skírnina fóru svo þeir sem vildu að leiðinu hans
Jónatans Helga. Jóna Hrönn hélt stutta athöfn þar og krakkarnir
fengu að setja kerti og blóm á leiðið. Það er alltaf jafn gott að
koma við þar, sérstaklega þegar veðrið er svona fallegt eins og á
sunnudaginn. Síðan fóru allir í veisluna sem var haldin í Hátíðasal
íþróttahússins á Álftanesi og skemmtu sér konunglega fram eftir
degi.
Í dag á Palli afmæli, er 23ja ára....... til hamingju með daginn
Palli !
»
25.10.2006 13:22:54 / jonatan
Palli og Helena
ætla að láta skíra Einar Rafn á sunnudaginn, 29. október, kl.
14:00 í Garðakirkju. Síðan verður heljarinnar veisla á
eftir í Hátíðarsal íþróttahússins á Álftanesi.
»
10.10.2006 21:05:53 / jonatan
Sæl kæru vinir.
Við Rabbi erum búin að ferðast mikið síðustu vikur. Í byrjun
september fórum við í 2ja vikna ferð, sem var ákveðin síðasta
vetur, og fóru Jón Ben , Anna Stína, Óla og Hjölli, vinir okkar með
okkur. Við flugum til Ítalíu og vorum þrjá daga í Róm, borg þar sem
er endalaust hægt að skoða, fórum þaðan í viku siglingu um
Miðjarðarhafið á risastóru og glænýju skemmtiferðaskipi, Costa
Concordia. Siglingin var eins og ævintýri, skipið glæsilegt, enda
bara verið í notkun í tvo mánuði og þjónar hvert sem litið var. Þar
eru 8 veitingastaðir, 13 barir, 4 sundlaugar og stærsta
líkamsræktarstöð sem er um borð í skemmtiferðaskipi í dag, leikhús,
bíó og verslanir. Skipið tekur um 3.000 gesti og er með um 1.500
manna áhöfn. Við sigldum frá Civitavecchia á Ítalíu og var komið
við í höfn á hverjum degi, Savona á Ítalíu, Barcelona á Spáni,
Palma á Mallorca, Túnis í Túnis, La Valletta á Möltu og Palermo á
Sikiley. Við fórum í land allstaðar og ýmist gengum um borgina eða
fórum í skoðunarferð.Síðustu þrjá dagana vorum við í bæ sem heitir
Montecatini, bærinn var í sjálfu sér allt í lagi, lítill miðbær með
fullt af dýrum "merkjavöru"verslunum. En hótelið sem átti að vera
3ja stjörnu var varla nema 1/2 stjarna, það var hörmung, og fannst
okkur ferðaskrifstofan gera mikil mistök með því að velja þetta
hótel eftir allan lúxusinn. En við lifðum það af og komum heim í 2
vikur til að fara aftur út. Að þessu sinni með Orkuvirki, vinnunni
hans Rabba, til Vilnius í Litháen. Við fórum á miðvikudegi og komum
aftur á sunnudegi. Vilnius er skemmtileg borg, gaman að labba um
gamla miðbæinn og góðar verslunarmiðstöðvar. Við fórum líka á
markað sem selur mikið af leður og skinnavöru auk alls annars
varnings eins og matvöru, bíla og hvað eina sem mann gæti vantað.
En nú erum við komin heim og ætlum ekki að fara neitt á
næstunni.
Kveðja Binna og Rabbi
»
30.08.2006 00:34:13 / jonatan
Í dag, 30. ágúst, eiga þeir afmæli Jónatan Helgi og Snorri
Benedikt.
Jónatan hefði orðið 19 ára og Snorri er 11 ára.
Snorri ætlar að halda upp á afmælið í dag, hann býður skólafélögum
sínum heim milli 5 og 8 og um kvöldið eru allir ættingjar og vinir
velkomnir í Vesturtúnið.
»
23.08.2006 01:42:13 / jonatan
»
23.08.2006 01:36:38 / jonatan
»
23.08.2006 01:35:02 / jonatan
»
23.08.2006 01:34:08 / jonatan
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|